Frétt
22. febrúar 2010
EJS með fermingarleik á Facebook
Nú styttist í fermingarnar og eru fyrstu fermingartölvurnar komnar í verslun EJS. Í ár er lögð áhersla á fjölbreytileika í vöruúrvali okkar. Nú þegar er Vostro V13 fartölvan komin í hús, Inspiron Zino HD borðtölvan og Inspiron One sem er 19" snertiskjár með innbyggðri tölvu. Í byrjun mars eigum við svo von á meðal annars Inspiron 1545, Inspiron 1570, Studio XPS 13" og 16" og Vostro 1015.
EJS ætlar að taka forskot á sæluna með léttum fermingarleik á Facebook. Fram að fermingum verður heppinn facebook-vinur EJS dreginn út og fær hann að launum gjafabréf í verslun EJS að verðmæti 10.000 kr.
Ef þú ert ekki nú þegar vinur EJS þá er um að gera að fara á www.facebook.com/ejsehf og ýta svo á FAN/AÐDÁANDI merkið efst á skjánum. Nánari upplýsingar eru að finna á Facebook síðunni okkar.