Frétt
16. febrúar 2010
EMC endurnýjar vottun EJS sem samstarfsaðila
EMC hefur staðfest stöðu EJS sem EMC Velocity Partner, en það er gert að undangenginni umfangsmikilli úttekt sem framkvæmd er tvívegis ár hvert. Til þess að standast kröfur þarf EJS að sýna fram á afburðar þekkingu og hæfni til þess að sinna hlutverki sínu gagnvart íslenska markaðnum, hvoru tveggja varðandi sölu og þjónustu.
EMC Velocity Partner staðan gerir það að verkum að EJS getur tryggt hérlendum viðskiptavinum sínum lausnir birgjans á mjög hagstæðum kjörum og hefur að auki besta mögulega aðgengi að færustu sérfræðingum EMC til þess að leita úrlausna á þeim verkefnum sem fyrir liggja hverju sinni.
EMC er eitt af stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum heimsins og hefur um áratugaskeið verið leiðandi á sviði vistunar, öryggis og geymslu gagna. EJS hefur á síðustu árum selt og þjónustað vel á þriðja hundruð gagnastæður frá EMC á Íslandi.
Frekari upplýsingar um EMC má finna á eftirfarandi slóð: www.emc.com
Þá er hægt að óska eftir frekari upplýsingum um EMC, samstarfið við EJS og/eða einstakar lausnir með því að senda póst á sala@ejs.is
Til baka