Frétt
11. febrúar 2010
Loksins Trend Micro námskeið á Íslandi
EJS hefur nú hlotið vottun „Authorized Training Center“ frá hendi Trend Micro. Unnið hefur verið að vottuninni í nokkurn tíma og er hún enn ein staðfesting á þekkingu og hæfni sérfræðinga EJS.
Með ATC vottuninni öðlast EJS heimild til þess að halda námskeið fyrir hinn mjög svo stóra hóp viðskiptavina sinna á sviði öryggislausna frá Trend Micro.
EJS hefur að undanförnu fundið fyrir auknum áhuga viðskiptavina sinna á því að nýta betur þær lausnir sem keyptar hafa verið, sem og að tæknimenn auki þekkingarstig sitt til þess að verða sjálfstæðari í daglegum rekstri kerfa. Þessum þörfum mun EJS nú hafa möguleika á að mæta á næstunni.
Í undirbúningi er Trend OCSE V10 Level 2 námskeið sem haldið verður nú á vordögum. Nánari tímasetning og frekari upplýsingar um námskeiðið verður komið á framfæri hér á vef EJS við fyrsta tækifæri.
Hafir þú áhuga á ofangreindu námskeiði ertu vinsamlegast beðin um að koma þeim áhuga á framfæri með því að smella hér. Þeim sem það gera verða sendar nánari upplýsingar um námskeiðið í tölvupósti.