Frétt
25. janúar 2010
Súðavíkurhreppur semur við EJS um kerfisleigu.
Súðavíkurhreppur hefur samið við EJS um rekstur tölvukerfis sveitarfélagsins. Í samningum felst að Súðavíkurhreppur fer inn í Kerfisleigu EJS og þarf því ekki lengur að reka sitt eigið tölvukerfi með þeirri áhættu sem því ávallt fylgir. Þessi hagræðing fyrir Súðavíkurhrepp felur í sér mikla lækkun á rekstrarkostnaði fyrir sveitarfélagið. Með Kerfisleigusamningi kemst Súðarvíkurhreppur hjá því að fjárfesta í búnaði með tilheyrandi endurnýjunar- og viðhaldsþörf. Afritunar- og öryggismál eru nú komin í fastan farveg og eru í höndum sérfræðinga EJS sem eru með mikla og góða sérþekkingu á öllu sem við kemur upplýsingatæknimálum. Súðavíkurhreppur er því kominn í góðan félagskap annarra sveitarfélaga s.s. Norðurþings og Fjallabyggðar sem notfæra sér þá hagræðingu sem felst í Kerfisleigu EJS.
„Það var mun minna mál en ég hafði talið að skipta og láta EJS sjá alfarið um afritunar- og öryggismálin og hætta um leið að reka okkar eigið tölvukerfi. Það hjálpaði til að starfsmenn EJS sinntu okkur 100% meðan á breytingunni stóð og leystu þau mál sem upp komu með fljótvirkum hætti og með mikilli fagmennsku. Ávinningurinn með samstarfinu við EJS er mikill. Hann fellst í lægri rekstrarkostnaði fyrir sveitarfélagið og áhyggjuleysi af endurnýjun og viðhaldi tölvubúnaðar og af afritunar- og öryggismálum“ Segir Ómar Már Jónsson sveitarstjóri Súðavíkurhrepps.