Frétt
08. janúar 2010
Höldur semur við EJS um hýsingu og rekstarþjónustu.
Höldur hefur samið við EJS um hýsingu og rekstarþjónustu á tölvubúnaði fyrirtækisins. EJS sér um heildarrekstur og hýsingu netþjóna Hölds þar sem afritunar – og öryggismál er mikilvægur þáttur. Hýsingarsalur EJS er einn af fullkomnustu hýsingarsölum landsins og er það því vel við hæfi að Höldur velji EJS sem sinn hýsingaraðila. Þess má geta að Höldur hefur til margra ára verið á IP hýsingarsímstöð EJS sem tengir saman allar starfsstöðvar Hölds. Höldur rekur stærstu bílaleigu landsins auk þess að reka hjólbarðaþjónustu, bílasölu og almennt þjónustuverkstæði. Hjá fyrirtækinu starfa um 100 starfsmenn. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Akureyri.
„Við erum afar ánægð með þennan samning við EJS. Við höfum átt mjög farsælt og langt samstarf við EJS m.a. um símamál fyrirtækisins og megnið af tölvukaupum einnig, en þetta er í fyrsta sinn sem við förum í hýsingu til þeirra. Við völdum EJS sem okkar hýsingaraðila vegna sérþekkingar þeirra á hýsingarmálum.“ Segir Steingrímur Birgisson forstjóri Höldurs
Myndatexti: Magnús Steinarr Norðdahl forstjóri EJS (t.v.) og Steingrímur Birgisson forstjóri Höldurs að undirrita samninginn
Til baka