Um EJS
STARFSEMI OG SKIPULAG EJS
STARFSEMI
EJS ehf. er einn stærsti söluaðili landsins á tölvum, útstöðvum, miðlarabúnaði, afgreiðslutækjum og tilheyrandi þjónustu. Starfsmenn leggja allt kapp á að veita framúrskarandi þjónustu og líta svo á, að til sé lausn á öllum vandamálum. EJS býður viðskiptavinum eingöngu upp á bestu fáanlegu lausnir og búnað til þess að tryggja að rekstur upplýsingakerfa gangi sem best fyrir sig. EJS hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins og markmið starfsmanna er að gera enn betur á árinu 2009.
EJS ehf. rekur tvær starfsstöðvar. Höfuðstöðvar þess eru á Grensásvegi 10 í Reykjavík og útibú er á Tryggvabraut 10 á Akureyri. Fyrirtækið er einnig með aðstöðu á Grensásvegi 8.
Árið 2009 var skipulagi fyrirtækisins breytt með þarfir viðskiptavina í huga. Sviðin eru nú þrjú talsins:
Þjónustusvið EJS býður viðskiptavinum uppá þjónustu við alla upplýsingatæknilega innviði með sérstakri áherslu á þarfir stórra fyrirtækja, þar sem kröfur til miðlægra kerfa eru miklar og flóknar. Viðskiptavinir lausnasviðs fá sérsniðna þjónustu að sínum þörfum. Sérfræðingar lausnasviðs eru til ráðgjafar í nethögun, Microsoft lausnum, öryggislausnum, gagnalausnum og IP símkerfum. Þjónustumenn sinna uppsetningum á útstöðvum og allri viðgerðarþjónustu ásamt þjónustu við verslunar- og fjármálalausnir.
Sölusvið EJS býður upp á búnað frá leiðandi fyrirtækjum í upplýsingatækni. Sem dæmi má nefna Dell, EMC, Xerox, SUN, Lucent/Alcatel, Cisco og svo mætti lengi telja. Hugbúnaðarlausnir eru einnig mikilvægur þáttur og þar eru samstarfsaðilar EJS t.d. Microsoft, Citrix, Trend Micro, VMware, Altiris o.s.frv. EJS er með mjög breitt vöruframboð fyrir verslunar- og fjármálafyrirtæki frá aðilum eins og NCR, De La Rue, Pricer og Qmatic svo eitthvað sé nefnt.
Rekstrarsvið heldur utan um fjárreiður, bókhald, innkaup og birgðahald ásamt gæðamálum. Rekstrarsvið aðstoðar við gerð og endurskoðun fjárhagsáætlana og þegar áætlanir hafa verið samþykktar ber sviðið ábyrgð á að þeim sé framfylgt.
Forstjóri EJS ehf. er ábyrgur fyrir að framfylgja stefnu stórnar fyrirtækisins. Hann er tengiliður starfsmanna og stjórnar og hefur á hendi yfirstjórn á allri starfseminni. Hann ber ábyrgð á að stefna sé ákvörðuð og henni framfylgt og hann er endanlega ábyrgur fyrir fjárhagslegri afkomu og ímynd fyrirtækisins.
Stjórn EJS ehf. er kosin á aðalfundi sem haldinn er í apríl eða maí ár hvert.
Stjórnina skipa:
- Stjórnarformaður: Þórður Ólafur Þórðarson
- Meðstjórnandi: Einar Páll Tamimi
- Meðstjórnandi: Gísli Valur Guðjónsson
- Meðstjórnandi: Lúðvík Örn Steinarsson
- Meðstjórnandi: Steinþór Baldursson