Afgreiðslukerfi
ÞJÓNUSTA AFGREIÐSLUKERFAÍ nútíma viðskiptum er gerð krafa um hnökralausa afgreiðslu. Til að tryggja nauðsynlegt rekstraröryggi afgreiðslukerfa býður EJS þjónustu sniðna að þörfum viðskiptavinarins.
EJS hefur selt og þjónustað afgreiðslukerfi frá stofnun fyrirtækisins árið 1939. Lengst af hefur þjónustan snúist um búnað frá NCR. Síðustu ár hefur bæst við þjónusta og vöruframboðið hin ýmsustu afgreiðslutæki og gildir þá einu hvort þau hafa verið seld af EJS eða ekki. AK deild EJS er mikilvægur þáttur af kjarnastafssemi fyrirtækisins og er ljóst að mikill vöxtur mun verða í deildinni. Alls starfa 10 mjög reyndir sérfræðingar á sviði afgreiðslubúnaðar hjá EJS.
Þjónustunet EJS
EJS þjónustar í dag fjölda viðskiptavina vítt og breitt um landið með reglubundnu viðhaldi og eftirliti annars vegar og hins vegar með útkallsþjónustu. Starfsstöðvar EJS eru bæði í Reykjavík og á Akureyri og er öllum viðskiptavinum þjónað frá þeim stöðum eftir því sem henta þykir hverju sinni. Þjónustumenn EJS eru á 24/7/365 bakvakt og hafa um árabil þjónustað fjölda verslana og hraðbanka með því fyrirkomulagi.
Rekstrarþjónusta EJS er sett saman úr mörgum mismunandi þjónustuþáttum. Viðskiptavinir geta valið það þjónustustig sem hentar hverjum um sig og þannig tryggt nauðsynlegt rekstraröryggi án óþarfa útgjalda. Dæmi um þjónustur eru: 7X24 sólarhringsvakt, fyrirfram skilgreindur viðbragðstími, símaþjónusta og fjarþjónusta.
Hafðu samband við söludeild EJS í síma 563 3000