RSS
Facebook

Innleiðing

UPPSETNING
JAÐARTÆKI | ÚTSTÖÐVAR | NETÞJÓNAR | NETBÚNAÐUR | HUGBÚNAÐUR

Láttu okkur sjá um að setja búnaðinn upp fyrir þig með sem minnstri truflun fyrir starfsumhverfi þitt. Sérfræðingar okkar geta einnig aðstoðað þið við að skipuleggja stærri uppsetningar og uppfærslur á hug- og vélbúnaði ásamt því að við sjáum um að losa þig við umbúðir og gamlan vélbúnað ef þess er óskað.


Uppsetning jaðartækja
Fáðu okkur til að setja upp varaaflgjafann fyrir þig eða tengja fyrir þig prentara með eins lítilli truflun fyrir fyrirtæki þitt og mögulegt er.


Uppsetning útstöðva
Það þarf að huga að mörgu þegar skipta á um útstöð notenda.  Oft gleymist að taka inn í reikninginn það vinnutap sam af hlýtst hjá notandanum ef slík aðgerð dregst á langinn.  Starfsmenn EJS eru þaulvanir slíkum útskiptum og geta unnið verkið fljótt og örugglega.  Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins hafa áttað sig á hagkvæmni þess að nýta sér þessa þjónustu.


Uppsetning netþjóna
Það er ekki á valdi allra að setja upp netþjóna, með öllum þeim þjónustum sem ofaná geta bæst.  Láttu sérfræðinga EJS sjá um uppsetninguna til að tryggja gæði hennar og viðhalda ábyrgð búnaðar.  Við getum sett þjóninn inn í skáp, stillt diska, sett á hann stýrikerfi og þær þjónustur sem þú þarfnast.


Uppsetning netbúnaðar
Hér er oftar en ekki þörf á sérstaklega vönduðum vinnubrögðum þar sem oft er um að ræða tengingar fyrirtækja við umheimin.  Þetta kallar á milkla þekkingu á þeim búnaði sem verið er að setja upp til að tryggja öryggi fyrirtækisins gagnvart utanaðkomandi aðilum.  Þetta á sérstaklega við þegar veriðer að setja upp beina (e. Routers) eða þráðlausar einingar.


Uppsetning hugbúnaðar
Það er mikið atriði að sá hugbúnaður sem settur er í innsta hring tölvukerfisins sé rétt uppsettur til að tryggja virkni kerfisins. Eftirfarandi hugbúnaður á það sameiginlegt að hann stuðlar að bættum rekstri í formi forvarna, eftirlits og fyrirhyggju.  Hér að neðan eru dæmi um hugbúnað sem EJS mælir eindreigið með að framkvæmd sé af vönum tæknimönnum. 

  • Neteftirlitskerfi og fjarvöktun
    Þessi þjónusta er hugsuð fyrir þá sem vilja fylgjast með nauðsynlegum þáttum tölvukerfisins til að geta brugðist við vandamálum áður en þau valda rekstrartruflunum og gera áætlanir fram í tíman með stækkanir kerfisins út frá raunverulegu álagi á því.
  • Vírusvörn
    Til að forvarnir virki er nauðsynlegt að þeim sé rétt beitt og eru vírusvarnir þar efstar á blaði. Uppsetning á vírusvörnum felst í uppsetningu á heildarlausn frá Trend sem felur í sér uppsetningu á netþjónum og útstöðvum. Einnig er sett upp stjórnstöð þar sem hægt er að fylgjast náið með uppfærslum og vírusstöðvunum á öllum netþjónum og útstöðum. Þessi stjórnstöð er einnig notuð til að dreifa vírusvörninni þ.a. öll umsýsla verði miðlæg.
  • Afritunarhugbúnaður
    Það er ekki nóg að afritun fari af stað, það þarf að tryggja að hún sé rétt framkvæmd og taki afrit af nauðsynlegum gögnum netþjónsins. Uppsetningin felst í uppsetningu á afritunarhugbúnaði frá Veritas og stillingum á honum.
    Ofangreind þjónusta er framkvæmd frá mánudegi til föstudags, á dagvinnutíma. Áætlaður tími í verkið getur fylgt tilboði í búnað eða fengist sérstaklega.
  • Windows Active Directory
    Það er eitt að setja upp þetta öfluga kerfi en annað að nýta alla þá vinnusparandi þætti sem það hefur upp á að bjóða. Fæstir nýta sér til fulls sjálfvirka hugbúnaðardreifingu, sjálfvirka uppsetningu prentara, sjálfvirkar og miðlægar stillingar á útstöðvum og fleira sem hefur bein áhrif á rekstrarkostnað.

 

 

Reynslan talar sínu máli

550 tölvur settar upp á 48 tímum!
Þegar Reykjavíkurborg stóð fyrir kosningu um framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni var EJS falið að sjá um verklega framkvæmd kosninganna.


Hátækniþorp á hálendinu
Tæknimenn EJS unnu hörðum höndum að því að net- og tölvuvæða 2000 manna byggðarlag við Kárahnjúka. 



 


Leit

Leit










Nýskráning »
Gleymt lykilorð »


Karfan þín

Karfan er tóm

Póstlisti





Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf EJS

  • Microsoft
  • Dell
  • Xerox
  • Emc2
  • Kingston
  • Sun
  • Trend Micro
  • Citrix
  • Cisco
  • NCR
  • RSA
  • VmWare
  • Alcatel-Lucent
  • APC
  • Plantronics
  • Seagate
  • Websense
  • LG-Nortel
  • Pinnacle
  • Adobe
  • Mvix
  • Hantarex
  • Ergotron
  • Club 3D
  • Tripplite
  • D-Link
  • Elo
  • Pricer
  • Datalogic
  • DeLaRue
  • Vensafe
  • Metrologic
  • Qmatic
  • talaris

Auglýsing

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi