RSS
Facebook

Ráðgjöf

Orðatiltækið "Í upphafi skal endinn skoða" á vel við þegar kemur að rekstri tölvu- og upplýsingakerfa. Góð fagleg ráðgjöf er grundvallaratriði til að vel takist þegar verið er að taka ákvarðanir um uppbyggingu og breytingar á tölvukerfum til að reksturinn gangi snuðrulaust fyrir sig. Þekking, reynsla og menntun starfsmanna er sá grunnur sem nauðsynlegur er til að veita góða og faglega ráðgjöf sem nýtist viðskiptavininum.


Almenn sérfræðiráðgjöf

Þegar veita á ráðgjöf í upplýsingatækni er nauðsynlegt að hafa til þess mikla reynslu og þekkingu, bæði fræðilega og tæknilega. Við ráðgjöfina eru notuð skipulögð og vottuð vinnubrögð að hætti EJS.

Það er mjög mjög mikilvægt þegar veita á góða ráðgjöf í upplýsingatækni að hún sé framkvæmd af aðilum sem hafa til þess framúrskarandi þekkingu og reynslu. Sérfræðingar EJS leitast þannig við að veita viðskiptavinum sínum faglega ráðgjöf, hver á sínu sérsviði.


Rekstrarráðgjöf

  • Hagkvæmur rekstur tölvukerfa:  Eitt það mikilvægasta í rekstri tölvukerfa er gott skipulag. Til þess að ná því fram þarf að koma til skjölun á því sem viðkemur rekstrinum. Skilgreining á stjórnskipulagi, kerfishandbók, kerfislýsing, afritunaráætlun og neyðaráætlun eru nokkrir af þeim þáttum sem unnir eru í samvinnu við viðskiptavininn og stuðla að hagkvæmari rekstri. Einnig er innleiðing sjálfvirkni við rekstur kerfisins s.s. sjálfvirk uppsetning útstöðva og hugbúnaðar ásamt eftirliti stór þáttur í því að gera reksturinn hagkvæman.
  • Nethögun: Er upplýsingakerfi þitt rétt hannað og að skila eins miklu af sér og það gæti? Láttu okkur fara yfir kerfið og benda þér á hluti sem betur mættu fara. Farið er yfir rekstraröryggi kerfisins og flöskuhálsar leitaðir uppi. Niðurstaðan er skýrsla sem gefur upplýsingar um stöðu kerfisins og er jafnframt kerfislýsing fyrir kerfið.
  • Misnotkun upplýsingakerfa: Ráðgjöf um aðgerðir til að koma í veg fyrir misnotkun upplýsingakerfa. Meðal annars er átt er við óæskilega vef- og póstnotkun. Farið er út í ábyrgð fyrirtækja vegna misnotkunar og mótun reglna um notkun og umgengni á upplýsingakerfi fyrirtækisins.


Öryggisráðgjöf

  • Mótun öryggisstefnu: Í boði er að vinna öryggisstefnu í samvinnu við viðskiptavini. Öryggisþarfir fyrirtækisins eru skilgreindar og áhættumat unnið, þar sem greindar eru þær hættur sem steðja að kerfinu, metnar eru líkur á að eitthvað komi fyrir (s.s. niðritími) og í framhaldi af því afleiðingar þess.
  • Öryggisúttekt: Er upplýsingakerfi þíns fyrirtækis eins öruggt eins og það á að vera? Láttu okkur fara yfir skilgreinda þætti kerfisins og taka út ytra- og innra- aðgengi að upplýsingakerfinu.
  • Val á öryggisbúnaði ? Það að velja réttu lausnina getur verið flókið mál. Fáðu sérfræðing EJS til að skoða aðstæður, meta með þér þörfina og aðstoða þig til að finna hagkvæmustu lausnina.
  • Innleiðing á BS17799 ? Margra ára reynsla EJS af því að vera með vottað gæðakerfi og eigin innleiðing á BS17799 gerir fyrirtækið sérstaklega hæft til þess að veita slíka ráðgjöf.

 EJS vinnur skv. ISO 9001 og ISO 27001 stöðlunum.

.

.

.

.

.

 

.

.

.

.

.

 

 


Leit

Leit










Nýskráning »
Gleymt lykilorð »


Karfan þín

Karfan er tóm

Póstlisti





Skráðu þig og fáðu sent fréttabréf EJS

  • Microsoft
  • Dell
  • Xerox
  • Emc2
  • Kingston
  • Sun
  • Trend Micro
  • Citrix
  • Cisco
  • NCR
  • RSA
  • VmWare
  • Alcatel-Lucent
  • APC
  • Plantronics
  • Seagate
  • Websense
  • LG-Nortel
  • Pinnacle
  • Adobe
  • Mvix
  • Hantarex
  • Ergotron
  • Club 3D
  • Tripplite
  • D-Link
  • Elo
  • Pricer
  • Datalogic
  • DeLaRue
  • Vensafe
  • Metrologic
  • Qmatic
  • talaris

Auglýsing

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi