Hýsing-Kerfisleiga
EJS HÝSING
|
|
|
|
|
|
Hýsing vélbúnaðar Komdu með þinn eigin búnað í hýsingarsal EJS. Búnaðurinn er vistaður við kjörhitastig og vaktaður af þjónustuveri EJS. |
Hýsing hugbúnaðar Fáðu aðgang að Dell vélbúnaði Hýsingar. Hægt að velja um Windows eða Linux. Viðskiptavinur fær aðgang að sínum hugbúnaði eða þjónustu yfir netið. |
Internettengingar Viðskiptavinum stendur til boða margvísleg þjónusta og lausnir. VPN, dulkóðaðar tengingar við Hýsingu, ljósleiðarasambönd, SHDSL og ADSL sambönd.
|
Öryggi Fullkomið kælikerfi, rafstöð og rafbakhjarlar tryggja rekstraröryggi ásamt innbrots og brunavörnum. |
EJS hýsing er miðlæg vistun tölvukerfa þar sem viðskiptavinir geta fengið upplýsingakerfi sín vistuð/hýst í heild sinni eða að hluta til.
Ávinningurinn með vistun/hýsing er samnýting fjárfestingar með öðrum viðskiptavinum EJS í fullkomnum vélarsal, vélbúnaði og hugbúnaði sem skilar sér í hagkvæmari rekstri upplýsingakerfisins.
Þú getur valið hvort allt eða hluti af upplýsingakerfinu þínu fer í hýsingu allt eftir þínum þörfum. Boðið er uppá nokkrar gerðir staðlaðrar þjónustu í hýsingu en að auki eru sérhannaðar lausnir þegar þess er þörf.
- Hýsing á vélbúnaði
- Hýsing á tölvupósti
- Hýsing á skráarsvæðum
- Kerfisleiga
- Vefhýsing
- Hýsing á léni
- Hýsing á gagnagrunnum
- Gagnasambönd eins og ljósleiðari, SHDSL, ADSL o.fl.
Hafðu samband við söludeild EJS í síma 563 3000 eða sendu póst á hysing-sala@ejs.is
EJS vinnur skv. ISO 9001 og ISO 27001 stöðlunum.
Kynntu þér einnig rekstrarþjónustu EJS hér